LöndSigurður Óskar Jónsson



create your own visited country map

Ég hvet alla til að fara á þessa síðu, merkja við löndin sem þeir hafa komið til og finna út hversu stórt hlutfall heimsins þið hafið kannað.  Hjá mér samsvarar þetta 3% heimsins, samkvæmt útreikningi síðunnar.

Stutt og laggottSigurður Óskar Jónsson


Meistarar > vesalingar

KosningarSigurður Óskar Jónsson

Greinilegt er að kosningar eru í nánd, í fyrradag kom t.d. kona frá Íslandshreyfingunni og bankaði hjá mér og var að safna undirskriftum, ég hélt nú síður, enda ekki skráður í það kjördæmi sem ég el manninn þessa dagana. Ég sagðist vera í Suðurkjördæmi. Þá sagðist hún nú vera með blað fyrir það kjördæmi, og spurði mig hvort ég væri frá Grindavík, eða einhversstaðar þaðan. Ég sagði eins og satt var að ég væri austan úr Hornafirði. Nei, nei, þá sagðist hún ekkert blað hafa fyrir það, kvaddi og bankaði bara hjá Kínverjanum sem býr á móti mér. Það er því nokkuð ljóst að ég mun ekki kjósa flokk sem getur ekki séð sóma sinn í því að fá fólk sem þekkir kjördæmaskipanina til að safna undirskriftum fyrir sig.

Í dag fékk ég svo aðra heimsókn, og það ekki frá ómerkari manni en varaformanni Samfylkingarinnar, Ágústi Ólafi Ágústssyni, sem ólmur vildi kynna fyrir mér menntastefnu síns flokks. Ekki nóg með það, heldur vildi hann endilega færa mér eina rauða rós í tilefni þess að sumarið er á næsta leyti. Ekki veit ég nú hvað það á að fyrirstilla, en rósina þáði ég og setti í mjólkurfernu, enda blómavösunum ekki fyrir að fara á þessu heimili.
Meðfylgjandi er mynd af rósinni í mjólkurfernunni.

rós

BloggSigurður Óskar Jónsson

Þetta blogg er tileinkað Svenna í Akurnesi, hann bað mig um að blogga og linnti ekki látum fyrr en ég setti eitthvað hérna inn.

Svenni, þetta er fyrir þig.

svenni

Svenni í nýjustu bónusferðinni í Borgarnesi.

Líklega það allra versta sem getur komið fyrir mann. (þó það geti vissulega ekki komið fyrir lengur)Sigurður Óskar Jónsson

jólaboð

Þetta er líklega ein sú allra fyndnasta mynd sem ég hef nokkurn tíma séð.

P.S. Svarið við getrauninni um daginn var að allt þetta fólk lék Stubbana í samnefndum þáttum.

GetraunSigurður Óskar Jónsson

Ég ætla að byrja með nýjan lið hérna á síðunni sem á að heita Sunnudagsgetraunin.  Ég ætla að reyna að setja inn getraun á hverjum sunnudegi og sá sem er fyrstur að svara rétt fær gríðarlega merkileg verðlaun. 
Fyrsta getraunin er nokkuð svínsleg en það er aldrei að vita nema maður komi með vísbendingar þegar líður á vikuna.

Hvað á þetta fólk sameiginlegt?

ab dc

Svar kemur síðar.

ÍbúðSigurður Óskar Jónsson

íbúð

Ég er víst að fara að flytja inn í einhverja svona íbúð eftir mánuð.  Það er reyndar bara eitt rúm og líklega ekki sjónvarp.  En þetta er á Suðurgötu 121, rétt við enda flugbrautarinnar.

hmmm, fyrirsögn. Hvað er nú það?Sigurður Óskar Jónsson

Vegna gríðarlegs fjölda áskoranna (uhumm, Lena og Emil) hef ég ákveðið að rita hér örfá orð. Þá er ég búinn að því. Lifið heil.



Nei, ætli ég hafi þau ekki aðeins fleiri. Mig langar að minnast aðeins á snjó. Snjór er ógeð. Hérna í Reykjavík er búið að snjóa miskunnarlaust síðan í fyrradag, og það virðist ekkert lát verða á því miðað við spárnar. Ég var að telja það saman í dag að ég hafi a.m.k. þurft að moka fimm sinnum af bílnum hjá mér í gær. Ég hefði þurft að gera það einu sinni til viðbótar ef ég hefði ekki fundið stæði á 1. hæð í Kringlunni.


fingrafarMig langar líka aðeins að minna á flugelda, og þá sérstaklega svokallaða Jumping Jack, sem er í fjölskyldupökkum frá Flugeldamörkuðum björgunarsveitanna. Þessir hoppandi Jóar, eins og ég kýs að kalla þá, eru skaðræðisgripir, sem enginn ætti að kaupa, spyrjið bara löngutöngina mína, en hér má einmitt sjá aflestur af fingrafarinu á henni. Ég skaðbrenndi sem sagt á mér löngutöngina á Gamlárskvöld þegar ég var að kveikja í einum slíkum grip.

Ég mæli líka eindregið með því að fólk fái sér Lenovo fartölvu, svo það geti á annað borð tekið mynd af fingrafarinu sínu. Brosandi

Lífið gengur samt sinn vana gang. Skólinn byrjaði einhverra hluta vegna aftur síðastliðinn miðvikudag en átti samkvæmt lagabókstafnum að byrja föstudaginn áður. Enginn veit hverju sætir. Fljótlega eftir að hann byrjaði var mér tjáð að ég væri að fara að læra tölfræði og þyrfti að kaupa 900 blaðsíðna bókarskruddu, og einhverja 300 blaðsíðna verkefnabók með. Þessi herlegheit kostuðu mig 7390 krónur, með hinum lögbundna 5% afslætti fyrir erlendar bækur. Seinna sama daginn fékk ég tölvupóst um að bókin í einu faginu væri ekki komin til landsins, en væri væntanleg. Ég fékk náttúrulega ekkert verð uppgefið, svo mér datt í hug að fletta henni upp á Amazon. Þar kostaði hún heil 75 sterlingspund, sem samsvarar rúmlega 10.000 krónum. Með öllum innflutningstollunum og virðisaukaskattinum, má ég því búast við að þurfa að borga allt að 15.000 krónur fyrir þessa blessuðu bók.

Jæja, nóg komið af væli. Ég ætla að fara út og pissa í snjóinn, kannski bráðnar hann hraðar ef ég geri það.

NegldurSigurður Óskar Jónsson

Nei, ég var ekki tekinn, eins og títtnefndur nafni minn nafnason, heldur var ég að koma undir bílinn nagladekkjum. Þessi dekk fann sá gamli, (þó ekki sá gamli í færslunni hér fyrir neðan, heldur sonur hans), í Dagskránni á Austurlandi. Reyndust þau vera á Stöðvarfirði og föl á gott verð ef álfelgurnar sem þau eru á væru með í kaupunum. Pabbi sá náttúrulega strax að þarna var um kærkomna jólagjöf handa frumburðinum að ræða og hringdi í eigandann og keypti allan pakkann. Hann ákvað að senda þetta á vegum Mjólkursamsölunnar hingað suður, með næturstoppi bæði í Freysnesi og á Selfossi. Ég þurfti því að fara upp á Bitruháls, (pnr. 110), til að sækja þau, sem var svo sem allt í lagi. Það er því ekki nóg með það að ég sé kominn á nagladekk, heldur er ég kominn á álfelgur líka. Eftir því sem ég best veit hefur Subaruinn minn aldrei haft slíka kostagripi undir sér, en ég held að hann venjist því fljótt.
Það var þó einn galli á gjöfum Njarðar, (eða öllu heldur Jóns í þessu tilviki), það vantaði skrúfurnar fyrir lokin á felgunum, þannig að ég þurfti að finna mér slíkan útbúnað sjálfur. Ég fékk starfsmenn HjólVest (Hjólbarðaverkstæði Vesturbæjar) til að smella þessu undir hjá mér, en þeir áttu því miður ekki til þessar skrúfur, en bentu mér á umboðið, (Ingvar Helgason), eða jafnvel Húsasmiðjuna. Þar sem umboðið er ansi langt í burtu (pnr. 110), ákvað ég að byrja að prófa í Húsasmiðjunni á Granda. Ekki áttu þeir neitt slíkt til þar, en bentu mér á umboðið. Þarna var klukkan 15:40, og þá ekki víst að ég myndi ná fyrir 4 í umboðið. Ég ákvað þó að drífa mig bara, í þeirri von að grunur minn um að þar lokaði klukkan 4 væri ekki á rökum reistur. Þegar ég var loksins búinn að finna þetta margumtalaða umboð, og þá sérstaklega varahlutaverslunina, þá sá ég, mér til mikils léttis, að það lokaði ekki fyrr en 6. En vonbrigðin létu ekki á sér standa, því engar svona skrúfur voru til þar. Þarna var ég semsagt búinn að fara tvisvar alla þessa leið, alltsvo úr Vesturbænum og upp í Árbæ? (að ég held), og annað skiptið algjöra fýluferð. Afgreiðslumaðurinn í umboðinu var þó svo almennilegur að benda mér á Hjólbarðahöllina Fellsmúla og ég skundaði því þangað. Þar kom loksins eitthvað út úr þessu og þeir áttu til svona skrúfur. Mér brá reyndar þegar ég heyrði hvað þetta kostaði, og fannst 980 krónur ansi mikið fyrir 4 litlar skrúfur og eitt járn til að herða þær, en ég sló þó til, enda ekki flott að rúnta um með loklausar álfelgur.
Dekkin

Hérna eru svo herlegheitin.

Hann afi minnSigurður Óskar Jónsson

AfiHann afi minn er einhver sá heppnasti og ótrúlegasti maður sem ég hef á ævi minni kynnst. Hann býr á Egilsstöðum og á það til að skipta um bíla í tíma og ótíma eins og menn gera nú stundum. Hann á það líka til að lenda í vandræðum með bílana sína. Einu sinni keypti hann sér t.d. hvítan Nissan Terrano sem ég sá aldrei, því mjög fljótt eftir að hann fékk hann, kom einhver og keyrði hann í klessu. Mig minnir að afi hafi sloppið ómeiddur frá því.
Nýjasti bíllinn hans afa er nú ekki af verri endanum. Blár Suzuki Grand Vitara, sem kemst allt. En í morgun breyttist það allt saman. Ég læt meðfylgjandi frétt af www.ruv.is fylgja segja söguna af því þegar afi ætlaði að fara að gefa hestunum sínum í morgun.


"Betur fór en á horfðist þegar ökumaður sementsflutningabíls missti stjórn á ökutæki sínu í hálku á Upphéraðsvegi skammt innan Egilsstaða á ellefta tímanum í morgun. Jeppi sem ók á undan flutningabílnum hægði á sér við afleggjara og snögghemlaði þá ökumaður flutningabílsins. Við það snérist bíllinn og sveiflaðist eftirvagn hans á jeppann, sópaði honum út af veginum og lenti ofan á honum. Jeppinn gjöreyðilagðist og má ökumaður hans teljast heppinn að sleppa án meiðsla. Ökumann sementsflutningabílsins sakaði ekki, en talsverðar skemmdir urðu á bílnum og eftirvagni hans."

Ég heyrði í gamla manninum rétt í þessu og hann bar sig vel, var dálítið brugðið, en annars við hestaheilsu. Það er kannski ekki skrítið, því þegar bóndinn á næsta bæ fór að athuga málið, þá var afi bara kominn út úr bílnum og farinn að gefa hestunum sínum.

Hérna má sjá mynd af bílnum:
Bíllinn í klessu

Auglýsing

Gömlu síðurnar mínar

Atburðarteljari

Könnun

Hvaða bloggkerfi er best?

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...