Hann afi minnSigurður Óskar Jónsson
Hann afi minn er einhver sá heppnasti og ótrúlegasti maður sem ég hef á ævi minni kynnst. Hann býr á Egilsstöðum og á það til að skipta um bíla í tíma og ótíma eins og menn gera nú stundum. Hann á það líka til að lenda í vandræðum með bílana sína. Einu sinni keypti hann sér t.d. hvítan Nissan Terrano sem ég sá aldrei, því mjög fljótt eftir að hann fékk hann, kom einhver og keyrði hann í klessu. Mig minnir að afi hafi sloppið ómeiddur frá því. Nýjasti bíllinn hans afa er nú ekki af verri endanum. Blár Suzuki Grand Vitara, sem kemst allt. En í morgun breyttist það allt saman. Ég læt meðfylgjandi frétt af www.ruv.is fylgja segja söguna af því þegar afi ætlaði að fara að gefa hestunum sínum í morgun.
"Betur fór en á horfðist þegar ökumaður sementsflutningabíls missti stjórn á ökutæki sínu í hálku á Upphéraðsvegi skammt innan Egilsstaða á ellefta tímanum í morgun. Jeppi sem ók á undan flutningabílnum hægði á sér við afleggjara og snögghemlaði þá ökumaður flutningabílsins. Við það snérist bíllinn og sveiflaðist eftirvagn hans á jeppann, sópaði honum út af veginum og lenti ofan á honum. Jeppinn gjöreyðilagðist og má ökumaður hans teljast heppinn að sleppa án meiðsla. Ökumann sementsflutningabílsins sakaði ekki, en talsverðar skemmdir urðu á bílnum og eftirvagni hans."
Ég heyrði í gamla manninum rétt í þessu og hann bar sig vel, var dálítið brugðið, en annars við hestaheilsu. Það er kannski ekki skrítið, því þegar bóndinn á næsta bæ fór að athuga málið, þá var afi bara kominn út úr bílnum og farinn að gefa hestunum sínum.
Hérna má sjá mynd af bílnum:
Athugasemdir
1
Sindri Snær skrifar:
jahá, hraustur maður hann afi þinn
29. nóvember 2006 klukkan 04:32
3
Sara Eik skrifar:
"Ég er afi minn... ég er afi minn".... :) Hæ Siggi!
29. nóvember 2006 klukkan 04:44
4
Siggi skrifar:
Já, hann er sko hraustur, enda alinn upp í oftar en ekki miklu harðfenni á Sænautaseli á Jökuldalsheiði.
29. nóvember 2006 klukkan 05:01
6
Loftur skrifar:
nú mér var sagt að það væru ekki til klukkur þarna í jökuldalnum og heiðini bara dagatöl
29. nóvember 2006 klukkan 06:28
7
Siggi skrifar:
Mig minnir að Jökuldælingar hafi ekki viljað kannast við orðið "almanök", heldur bara dagatöl. Klukkur komu þessu ekkert við.
29. nóvember 2006 klukkan 06:32
8
Loftur skrifar:
nunu það var nu got að missilnigur verði upprætur í eitt skift fyrir öll
29. nóvember 2006 klukkan 06:35