NegldurSigurður Óskar Jónsson

Nei, ég var ekki tekinn, eins og títtnefndur nafni minn nafnason, heldur var ég að koma undir bílinn nagladekkjum. Þessi dekk fann sá gamli, (þó ekki sá gamli í færslunni hér fyrir neðan, heldur sonur hans), í Dagskránni á Austurlandi. Reyndust þau vera á Stöðvarfirði og föl á gott verð ef álfelgurnar sem þau eru á væru með í kaupunum. Pabbi sá náttúrulega strax að þarna var um kærkomna jólagjöf handa frumburðinum að ræða og hringdi í eigandann og keypti allan pakkann. Hann ákvað að senda þetta á vegum Mjólkursamsölunnar hingað suður, með næturstoppi bæði í Freysnesi og á Selfossi. Ég þurfti því að fara upp á Bitruháls, (pnr. 110), til að sækja þau, sem var svo sem allt í lagi. Það er því ekki nóg með það að ég sé kominn á nagladekk, heldur er ég kominn á álfelgur líka. Eftir því sem ég best veit hefur Subaruinn minn aldrei haft slíka kostagripi undir sér, en ég held að hann venjist því fljótt.
Það var þó einn galli á gjöfum Njarðar, (eða öllu heldur Jóns í þessu tilviki), það vantaði skrúfurnar fyrir lokin á felgunum, þannig að ég þurfti að finna mér slíkan útbúnað sjálfur. Ég fékk starfsmenn HjólVest (Hjólbarðaverkstæði Vesturbæjar) til að smella þessu undir hjá mér, en þeir áttu því miður ekki til þessar skrúfur, en bentu mér á umboðið, (Ingvar Helgason), eða jafnvel Húsasmiðjuna. Þar sem umboðið er ansi langt í burtu (pnr. 110), ákvað ég að byrja að prófa í Húsasmiðjunni á Granda. Ekki áttu þeir neitt slíkt til þar, en bentu mér á umboðið. Þarna var klukkan 15:40, og þá ekki víst að ég myndi ná fyrir 4 í umboðið. Ég ákvað þó að drífa mig bara, í þeirri von að grunur minn um að þar lokaði klukkan 4 væri ekki á rökum reistur. Þegar ég var loksins búinn að finna þetta margumtalaða umboð, og þá sérstaklega varahlutaverslunina, þá sá ég, mér til mikils léttis, að það lokaði ekki fyrr en 6. En vonbrigðin létu ekki á sér standa, því engar svona skrúfur voru til þar. Þarna var ég semsagt búinn að fara tvisvar alla þessa leið, alltsvo úr Vesturbænum og upp í Árbæ? (að ég held), og annað skiptið algjöra fýluferð. Afgreiðslumaðurinn í umboðinu var þó svo almennilegur að benda mér á Hjólbarðahöllina Fellsmúla og ég skundaði því þangað. Þar kom loksins eitthvað út úr þessu og þeir áttu til svona skrúfur. Mér brá reyndar þegar ég heyrði hvað þetta kostaði, og fannst 980 krónur ansi mikið fyrir 4 litlar skrúfur og eitt járn til að herða þær, en ég sló þó til, enda ekki flott að rúnta um með loklausar álfelgur.
Dekkin

Hérna eru svo herlegheitin.

Athugasemdir

1
Blessaður siggi minn.. gaman að sjá þig hér.. rakst fyrir algjöran grís hérna inná...
30. nóvember 2006 klukkan 00:57
2
Loftur skrifar:
þú áttir nu bara að fara strax í bilanaust bílshöfða og gera ekkert mál ur hlutunum
30. nóvember 2006 klukkan 03:23
3
Siggi skrifar:
Mig langar að benda á nýjar undirsíður, alltsvo DVD safnið og Veitingahúsagagnrýni hér til vinstri.
30. nóvember 2006 klukkan 05:32
4
Pálmi skrifar:
hvað hefurðu ekkert betra en að blogga og svoleiðis í Háskólanum eða?
30. nóvember 2006 klukkan 17:04
5
Lena skrifar:
Mjög skemmtilegur liður þessi vetingahúsagagnrýni hjá þér, kemur í veg fyrir að við veljum vitlaust og borðum vondan mat á ósnyrtilegum veitingahúsum með ömurlegri þjónustu :P Ég sé að þú vinnur alltaf á Núinu, eða er það ekki annars rétt hjá mér?
30. nóvember 2006 klukkan 21:59
6
Siggi skrifar:
Jú, satt er það Lena. Maður er ekki fyrr búinn að nýta sér tilboðin þegar manni berast önnur. T.d. daginn eftir að ég fór á Red Chili, fékk ég annan nákvæmlega eins vinning sem ég á eftir að nýta mér.
30. nóvember 2006 klukkan 23:08
7
Kristín skrifar:
Sé bara hverji þessa linka...
01. desember 2006 klukkan 16:51
8
Siggi skrifar:
Leitið og þér munið finna Kristín mín.
01. desember 2006 klukkan 19:42
9
Loftur skrifar:
siggi þú verður nú og fara sklea þér á stælinn og koma með koment um þann sinldar stað
01. desember 2006 klukkan 20:59
10
Siggi skrifar:
Já, ég fór nú reyndar þangað um daginn. Aldrei að vita nema ég skrifi eitthvað um hann.
01. desember 2006 klukkan 22:56
11
Loftur skrifar:
um að gera svo mæli eg með pizza hut , þar á ég við hádeigishlaðborðinu
02. desember 2006 klukkan 07:33
12
Siggi skrifar:
Ég vil endilega benda fólki á að það eru komnar nýjar færslur í veitingahúsagagnrýninni.
04. desember 2006 klukkan 04:51
13
Emil Moráev skrifar:
ég vil endilega fara að benda þér áþað að blogga
11. janúar 2007 klukkan 06:23
14
Lena skrifar:
Jæja á ekki að fara að blogga!
12. janúar 2007 klukkan 19:29

Skrifa athugasemd

Auglýsing

Gömlu síðurnar mínar

Atburðarteljari

Könnun

Hvaða bloggkerfi er best?

Innskráningar kubbur

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...