hmmm, fyrirsögn. Hvað er nú það?Sigurður Óskar Jónsson
Vegna gríðarlegs fjölda áskoranna (uhumm, Lena og Emil) hef ég ákveðið að rita hér örfá orð. Þá er ég búinn að því. Lifið heil.Nei, ætli ég hafi þau ekki aðeins fleiri. Mig langar að minnast aðeins á snjó. Snjór er ógeð. Hérna í Reykjavík er búið að snjóa miskunnarlaust síðan í fyrradag, og það virðist ekkert lát verða á því miðað við spárnar. Ég var að telja það saman í dag að ég hafi a.m.k. þurft að moka fimm sinnum af bílnum hjá mér í gær. Ég hefði þurft að gera það einu sinni til viðbótar ef ég hefði ekki fundið stæði á 1. hæð í Kringlunni.
Mig langar líka aðeins að minna á flugelda, og þá sérstaklega svokallaða Jumping Jack, sem er í fjölskyldupökkum frá Flugeldamörkuðum björgunarsveitanna. Þessir hoppandi Jóar, eins og ég kýs að kalla þá, eru skaðræðisgripir, sem enginn ætti að kaupa, spyrjið bara löngutöngina mína, en hér má einmitt sjá aflestur af fingrafarinu á henni. Ég skaðbrenndi sem sagt á mér löngutöngina á Gamlárskvöld þegar ég var að kveikja í einum slíkum grip. Ég mæli líka eindregið með því að fólk fái sér Lenovo fartölvu, svo það geti á annað borð tekið mynd af fingrafarinu sínu.

Lífið gengur samt sinn vana gang. Skólinn byrjaði einhverra hluta vegna aftur síðastliðinn miðvikudag en átti samkvæmt lagabókstafnum að byrja föstudaginn áður. Enginn veit hverju sætir. Fljótlega eftir að hann byrjaði var mér tjáð að ég væri að fara að læra tölfræði og þyrfti að kaupa 900 blaðsíðna bókarskruddu, og einhverja 300 blaðsíðna verkefnabók með. Þessi herlegheit kostuðu mig 7390 krónur, með hinum lögbundna 5% afslætti fyrir erlendar bækur. Seinna sama daginn fékk ég tölvupóst um að bókin í einu faginu væri ekki komin til landsins, en væri væntanleg. Ég fékk náttúrulega ekkert verð uppgefið, svo mér datt í hug að fletta henni upp á Amazon. Þar kostaði hún heil 75 sterlingspund, sem samsvarar rúmlega 10.000 krónum. Með öllum innflutningstollunum og virðisaukaskattinum, má ég því búast við að þurfa að borga allt að 15.000 krónur fyrir þessa blessuðu bók.
Jæja, nóg komið af væli. Ég ætla að fara út og pissa í snjóinn, kannski bráðnar hann hraðar ef ég geri það.
Athugasemdir
1
kolla frænka skrifar:
Ekki gott að brenna sig á fokkiputta
13. janúar 2007 klukkan 06:12
2
Siggi skrifar:
Nei, hver andskotinn. Hvernig fannst þú þessa síðu Kolla?
13. janúar 2007 klukkan 08:21
3
kolla frænka skrifar:
það er nú ekki málið að finna, bara leita. Gangi þér allt í haginn frændi minn :)
14. janúar 2007 klukkan 06:43
4
Loftur skrifar:
það er mikið sem hefur gengið á þér sigurður þarna í reykjavíkinni
18. janúar 2007 klukkan 01:42