KosningarSigurður Óskar Jónsson
Greinilegt er að kosningar eru í nánd, í fyrradag kom t.d. kona frá Íslandshreyfingunni og bankaði hjá mér og var að safna undirskriftum, ég hélt nú síður, enda ekki skráður í það kjördæmi sem ég el manninn þessa dagana. Ég sagðist vera í Suðurkjördæmi. Þá sagðist hún nú vera með blað fyrir það kjördæmi, og spurði mig hvort ég væri frá Grindavík, eða einhversstaðar þaðan. Ég sagði eins og satt var að ég væri austan úr Hornafirði. Nei, nei, þá sagðist hún ekkert blað hafa fyrir það, kvaddi og bankaði bara hjá Kínverjanum sem býr á móti mér. Það er því nokkuð ljóst að ég mun ekki kjósa flokk sem getur ekki séð sóma sinn í því að fá fólk sem þekkir kjördæmaskipanina til að safna undirskriftum fyrir sig.Í dag fékk ég svo aðra heimsókn, og það ekki frá ómerkari manni en varaformanni Samfylkingarinnar, Ágústi Ólafi Ágústssyni, sem ólmur vildi kynna fyrir mér menntastefnu síns flokks. Ekki nóg með það, heldur vildi hann endilega færa mér eina rauða rós í tilefni þess að sumarið er á næsta leyti. Ekki veit ég nú hvað það á að fyrirstilla, en rósina þáði ég og setti í mjólkurfernu, enda blómavösunum ekki fyrir að fara á þessu heimili.
Meðfylgjandi er mynd af rósinni í mjólkurfernunni.
Athugasemdir
2
Siggi skrifar:
Maðurinn sem færði mér rósina skrifaði einmitt þessa umtöluðu Lónsöræfagrein. En ég vil fyrirbyggja allan misskilning og taka það fram að ég hleypti honum svo sannarlega ekki inn, þess þá heldur passaði ég það sérstaklega að hann kæmist ekki inn.
06. maí 2007 klukkan 13:07
En ég myndi aldrei hleypa þessu pakki inn til mín... enda geri ég það sennilega að vana mínum að vera í útlöndum yfir kosningatímabil hehehe. Mér finnst alveg endalaust leiðinlegt að geta ekki skoðað eystrahorn og horn.is og fleira svona án þess að rekast á eeeendalausa pistla frá fólki sem maður þekkir ekki neitt og þeim er sjálfsagt slétt sama um Hornafjörð, það ætti bara að vera sér blað fyrir þetta. T.d var einn gaur um daginn að skrifa um gögn undir LónsÖRÆFI ekki heiðina. Hann veit mikið.
En það þýðir nú lítið að skammast í þér Siggi minn, þú ert mannvitsbrekka og sómamaður :) og sendir Nudge á msn hahahaha