blog.central.is er ruslSigurður Óskar Jónsson
Þar kom loksins að því að ég sagði skilið við blog.central.is kerfið fyrir fullt og allt. Var það vegna þess að allt hið illa í heiminum er samankomið í því vangefna kerfi. Ég hef því ákveðið að gera eins og svo margir hafa gert á undan mér, alltsvo koma upp .bloggar.is síðu. Bæði er það af því að viðmótið er mun betra heldur en á hinu ruslinu, t.d. er hægt að klippa og líma texta hérna, en þau sjálfsögðu mannréttindi eru sniðgengin af hinu títtnefnda blog.central rusli.En ég er nú að hugsa um að hafa þessa fyrstu færslu mína hér ekkert mikið lengri, heldur vísa bara á myndirnar sem ég setti inn sem tilraun.
Ég ætla svo að enda þetta á einni ferskeytlu sem ég rimpaði upp úr mér á örskotstundu.
Umbreytingar eru nú,
nauðsynlegar flestum.
Geri ég því góðan snú,
og sýni gömlum gestum.
E.S. Þið verðið að fyrirgefa að stuðlunin er ekki alveg fullkomin, en ég leyfi mér samt sem áður að kalla þetta ferskeytlu.
Ég verð eiginlega að láta þessa litlu mynd af afa gamla fylgja með, en hún er tekin á Reyðarfirði í vor.
VirkniathugunSigurður Óskar Jónsson
Jæja, ætli þetta apparat virki?