Á þessari síðu munu koma pistlar um hin ýmsu veitingahús sem ég fer á og stuttar lýsingar og einnig gagnrýni. Ég ætla að styðjast við svipað kerfi og Dr. Gunni sem er svohljóðandi:
XXXX=Snilld / XXX=Fínt / XX=La la / X=Drasl / 0=Viðurstyggilegur viðbjóður.
Hótel mamma, Stapi, Hornafirði
Þarna borðaði ég nánast upp á hvern dag í rúmlega 19 ár. Það þarf ekki að segja meira.
Heildareinkunn: XXXXX af 4 mögulegum.
KFC, Hafnarfirði
Kom þangað þann 3. desember, þreyttur og pirraður eftir að hafa verið á fótboltamóti, þar sem skónum mínum var stolið. Við vorum á ferð þarna rétt á undan örtröðinni, og ég pantaði mér bara eitthvað, enda ennþá að hugsa um skóna. Rétturinn reyndist vera Zinger Tower borgari, með frönskum og gosi. Kjúklingurinn var nú kannski heldur mikið kryddaður fyrir minn smekk, en var þó nokkuð góður. Það þurfti að kaupa kokteilsósu sér og það er stór mínus. Það vann þó upp á móti því að það var frí áfylling af gosi þannig að það núllast út.
Heildareinkunn: XXX
Ölver, Glæsibæ, Reykjavík
Fór þangað 2. desember 2006. Einhver týpískasti hamborgari sem ég hef smakkað. Það var ekkert sérstakt við hann, og ég fékk gosið meira að segja í plasti, sem þykir nú ekki góð latína hjá mér. Staðurinn hefði fengið X, ef ekki hefði viljað svo skemmtilega til að um leið og ég pantaði, uppgötvaðist að kokkurinn hafði gert einhver mistök og gert einum borgara of mikið. Ég fékk því borgarann minn áður en ég settist aftur eftir að hafa pantað hann. Franskarnar voru líka ágætar svo að...
Heildareinkunn: XX
American Style, Skipholti, Reykjavík
Þangað fór ég einhverntíma seint í október og hafði mömmu mína með. Við vorum svolítið seint á ferð svo það var lítið af fólki á staðnum. Ég pantaði mér að sjálfsögðu 200 gr. nautasteikina. Þegar hún kom, þá brá mér eiginlega þegar ég sá hvað það var rosalega mikið af pipar á henni. Það var svo sem allt í lagi, enda um piparsteik að ræða. Samt sem áður var þetta mjög góð steik. Ég var líka spurður hvað ég vildi hafa hana mikið steikta, en það er mikill plús fyrir slíkt. (ég lenti nefnilega í því einu sinni að vera ekki spurður hvað ég vildi steikina mína mikið steikta og svo kom einhver viðbjóður á diski sem minnti á hrossatað til mín stuttu seinna.) Sósan var líka glymrandi góð, salatið ágætt, en mér hefur alltaf þótt það undarlegur siður hjá Kananum að vilja endilega hafa franskar með steikum. Ég get því ekki gefið XXXX í einkunn, og finnst XXX of lítið. Lokaniðurstaða er því...
Heildareinkunn: XXX og 1/2
Quiznos, Lækjargötu, Reykjavík
Aðdragandi ferðar minnar þangað þann 29. nóvember, var eiginlega alveg eins og í ferðinni á Red Chili, nema hvað þar átti ég helmingsafslátt af stórri samloku. Þarna var, líkt og á Red Chili, ekki nokkur lifandi sála, nema ein stúlkukind sem var að vinna þar. Jæja, ég fékk mér eitthvað sem mig minnir að hafi heitið Bacon Classic, en það var nú undarlegt beikonið á þessu sem ég fékk. Maður fann reyndar alveg bragðið, en ég veit enn ekki af hverju ég fann beikonbragðið, því ekki sá ég neitt beikon á samlokunni. Stólarnir þarna voru ýmist skærrauðir eða -grænir barstólar með einhverri glimmeráferð, sem mér fannst nú frekar glatað, enda lítið fyrir glimmer. Það var samt alveg ágætt að sitja á þeim, þangað til maður reyndi að standa upp, því buxurnar hálflímdust við sætið, sem var frekar klístrað. Samlokan var nú ágæt, en þónokkuð dýr, að mér fannst. Því með þessum helmingsafslætti kostaði þetta allt saman, stór samloka og gos, 702 krónur, (þið getið reiknað út hvað þetta myndi kosta venjulega). Það vegur þó upp á móti að það var frí áfylling af gosi svo að...
Heildareinkunn: XXX
Klúbburinn, við Gullinbrú, Reykjavík
Ostborgaratilboðið á Klúbbnum klikkar aldrei, sérstaklega þegar United eru að vinna. Þegar ég fór þangað þann 27. nóvember, þá var einhvernveginn allt fullkomið, nema kannski seinni hálfleikurinn í leiknum. Borgarinn kom á nákvæmlega fullkomnum tíma, eða þegar dómarinn var að flauta leikinn á, hann var líka hæfilega sveittur, borgarinn alltsvo, (reyndar örugglega dómarinn líka.) Frönskurnar klikkuðu ekki og kokteilsósan var kyngimögnuð. Það gæti mögulega dregið einkunnina aðeins niður að það má reykja þarna inni, en bæði kostnaðurinn, (1100 kr. með gosi) og það hversu fullkomið þetta var allflest gera það að verkum að...
Heildareinkunn: XXXX
Red Chili, Austurstræti, Reykjavík
23. nóvember fór ég þangað. Kom heim, ansi svangur eftir taugatrekkjandi dag í skólanum. Það var ekkert til þar að éta, þannig að ég vissi ekkert hvað ég átti að gera í matarmálum, þangað til ég mundi allt í einu eftir því að ég hafði unnið 25% afslátt af matseðli hjá Red Chili, þannig að ég skundaði þangað, um miðjan dag á fimmtudegi. Þar var náttúrulega ekki nokkur sála, fyrir utan tvær hræður sem virtust vera að vinna þarna. Mér var þó tekið með kostum og kynjum og spurður hvort ég hyggðist borða, sem ég játaði. Ég pantaði mér einhvern beikon/ost borgara, sem mér þótti nú vera furðu lengi að koma, miðað við að þarna var enginn annar að borða. Þegar hann loksins kom, þá valt efri hlutinn af honum og á borðið, en ég lét það ekki á mig fá, enda ýmsu vanur. Þetta var svo sem ágætis borgari, ekki kannski sá allra besti, en þó ágætur. Frönsku kartöflurnar voru hins vegar frekar undarlegar, og engin var kokteilsósan. Það sló mig þó mest að fyrir ofan mig var sjónvarp, sem á var stillt sjónvarpsstöðin E!. Gátu þeir virkilega ekki fundið neitt uppbyggilegra sjónvarpsefni, heldur en 20 mestu skandalarnir á árinu á þessari gjörsamlega glötuðu stöð? Ég hefði líklega gefið þessum stað X, en borgarinn var nú ekki alslæmur, þjónustan ágæt og kostnaðurinn var rétt um þúsundkallinn, með gosi og 25% afslætti svo að:
Heildareinkunn: XX
Kaffi París, Austurstræti, Reykjavík
Þangað fór ég til að gera verkefni fyrir skólann. Þjónustan var nokkuð góð. Mér sýndist flestir þjónarnir vera útlendingar, sem er kannski skiljanlegt á kaffihúsi sem kennir sig við evrópska höfuðborg. Ég keypti mér kakóbolla, og ég er ekki frá því að þetta hafi bara hreinlega verið besta kakóið sem ég smakkað, alltsvo keypt mér. Því það slær nú ekkert út kakóið hjá ömmu. Ég hefði örugglega gefið þessum stað XXXX ef ekki hefði verið risastór hópur af Svíum þar inni, öskrandi og hlæjandi eins og bjánar.
Heildareinkunn: XXX
Snæðingurinn, Umferðamiðstöðin, Reykjavík
Þangað fór ég þann 18. nóvember síðastliðinn með Birni bróður mínum, gagngert til að fá okkur sviðakjamma, borinn fram með rófustöppu og íslensku jarðeplamauki, (fína orðið yfir kartöflumús.) Það gerðum við svo sannarlega og smjöttuðum á augum og hnakkaspiki eins og Nesjamönnum einum er lagið. Ekki spillir fyrir að þetta er ansi skemmtilegur staður, og setur súlan með vegvísunum ansi skemmtilegan svip á þennan mjög svo þjóðlega stað. Ef eitthvað má setja út á þetta, þá var rófustappan ekkert rosalega góð, en það breytir ósköp litlu, menn skilja hana þá bara eftir. Algjör snilld.
Heildareinkunn: XXXX
Classic Rock, Ármúla, Reykjavík.
Þann 1. nóvember 2006 fór ég þangað til að horfa á einn fótboltaleik eða svo. Ég fór á barinn og ætlaði nú bara að fá mér kók, en rakst þá á auglýsingu með einhverju Classic Rock flatbökutilboði, 12" með fullt af áleggi á 1400 kr. þannig að ég skellti mér bara á það. Ég bjóst nú kannski ekki við neitt rosalega miklu, en þegar bakan kom, þá kom það mér á óvart hvað hún var vel útilátin, mikið á henni og meira að segja þónokkuð góð, svo ég segi nú alveg eins og er. Flatbakan sjálf myndi nú alveg örugglega fá XXX, en því miður verð ég að lækka heildareinkunnina niður í XX, einfaldlega vegna þess að þetta er skítugur sportbar þar sem má reykja inni.
Heildareinkunn: XX